Öðrum keppnisdegi á Crossfitleikunum er nú lokið í Bandaríkjunum og eru Íslendingar heldur betur að ná góðum árangri. Íþróttakonan Annie Mist Þórisdóttir er í 1. sæti í kvennaflokki eins og staðan er núna.
Annie Mist er staðráðin í að standa sig vel í ár enda á hún titil að verja því hún bar sigur úr býtum á mótinu í fyrra. Á morgun hefst svo keppni á ný með spennandi hlaupi.
Árangur hennar hefur vakið mikla athygli ytra enda er Annie Mist ein sú besta í heiminum í crossfit.
Vert er að benda fólki á að hér má fylgjast með stigatöflunni.