Farið er að rigna á Suðurlandi og á höfuðborgarsvæðinu. Í Vestmannaeyjum er orðið hvasst og þoka upp í miðjan Heimaklett. Annarsstaðar á Suðurlandi er fremur rólegt veður.
Samkvæmt upplýsingum frá Herjólfi mun hann sigla að óbreyttu í kvöld, en næsta ferð er frá Vestmannaeyjum kl. 17:30.