Síðasta ferð Herjólfs fellur niður vegna vinds og ölduhæðar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Nú er vindur um 30m/s í hviðum og ölduhæð 3,1 m og 2,8 m á duflunum tveimur í Landeyjahöfn.
Varðandi siglingar á morgun eru farþegar beðnir að fylgjast með fréttum á herjolfur.is, facebook síðu Herjólfs og síðu 415 í textavarpi RUV.