Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um tíuleytið í morgun um mann sem hafði flett sig klæðum og berað kynfæri sín fyrir framan konu sem var að ganga með hundinn sinn í austurborginni.
Ekki er vitað hver var þarna á ferð en mannsins er nú leitað.