Aukin velta á fasteignamarkaði

Fjöldi þing­lýstra kaup­samn­inga á höfuðborg­ar­svæðinu 13. júlí til og með 19. júlí 2012 var 115 en þeir voru 91 í vik­unni á und­an. Þá var velt­an 2,7 millj­arðar.

Af þess­um 115 samn­ing­um voru 86 samn­ing­ar um eign­ir í fjöl­býli, 15 samn­ing­ar um sér­býli og 14 samn­ing­ar um ann­ars kon­ar eign­ir en íbúðar­hús­næði. Heild­ar­velt­an var 3.088 millj­ón­ir króna og meðal­upp­hæð á samn­ing 26,8 millj­ón­ir króna, sam­kvæmt yf­ir­liti Þjóðskrár.

Á sama tíma var 11 kaup­samn­ing­um þing­lýst á Suður­nesj­um. Þar af voru 5 samn­ing­ar um eign­ir í fjöl­býli, 5 samn­ing­ar um sér­býli og 1 samn­ing­ur um ann­ars kon­ar eign­ir en íbúðar­hús­næði. Heild­ar­velt­an var 169 millj­ón­ir króna og meðal­upp­hæð á samn­ing 15,4 millj­ón­ir króna.

Á sama tíma var 4 kaup­samn­ing­um þing­lýst á Ak­ur­eyri. Þar af voru 2 samn­ing­ar um eign­ir í fjöl­býli og 2 samn­ing­ar um sér­býli. Heild­ar­velt­an var 83 millj­ón­ir króna og meðal­upp­hæð á samn­ing 20,8 millj­ón­ir króna.

Á sama tíma var 5 kaup­samn­ing­um þing­lýst á Árborg­ar­svæðinu. Þar af var 1 samn­ing­ur um eign­ir í fjöl­býli og 4 samn­ing­ar um sér­býli. Heild­ar­velt­an var 113 millj­ón­ir króna og meðal­upp­hæð á samn­ing 22,6 millj­ón­ir króna.

Vak­in er at­hygli á að meðal­upp­hæð kaup­samn­ings er ekki hægt að túlka sem meðal­verð eigna og þar með sem vís­bend­ingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaup­samn­ing­ur get­ur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eign­ir eru mis­stór­ar, mis­gaml­ar o.s.frv.

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert