Álagningarseðlar nú aðgengilegir

Opnað hefur verið fyrir aðgang að álagningarseðlum vegna álagningar einstaklinga árið 2012. Auglýsing um álagninguna og kærufrestur miðast þó við morgundaginn, 25. júlí.

Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri segir að ákveðið hafi verið að opna fyrir aðganginn í kvöld til að létta á umferð um vefsvæði RSK á morgun.

„Við opnum þetta heldur fyrr til að létta á álagi á netþjónum; til að það fari ekki allir inn á sama tíma í fyrramálið,“ segir Skúli.

Hægt er að skoða álagningarseðlana á rsk.is og skattur.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert