Heimilisiðnaðarsafnið fylltist af fólki og andi liðinna tíma sveif yfir vötnum þegar þjóðbúningasýning var haldin í safninu á sunnudegi í Húnavöku.
Oddný Kristjánsdóttir, klæðskeri og sérfræðingur í íslenska þjóðbúningnum, kynnti íslenska þjóðbúninginn og þær breytingar sem hann hefur tekið í gegnum tíðina m.a. vegna áhrifa af tískustraumum að utan. Börn og fullorðnir sýndu búningana og gengu um á meðal gestanna sem gæddu sér jafnframt á kaffi og kleinum í boði safnsins.