Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði fjóra ökumenn í nótt, grunaða um að vera undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Einn þeirra var að auki án ökuréttinda, en hann hafði verið sviptur þeim og lögreglu þótti ýmislegt athugavert við bifreið annars ökumanns og voru skráningarnúmer hennar fjarlægð.
Allir fjórir voru handteknir og færðir á lögreglustöð til sýna- og upplýsingatöku.