Ásmundur Einar Daðason, þingmaður Framsóknarflokksins, verður einn fjölmargra keppenda á mýrarboltamótinu á Ísafirði um verslunarmannahelgina. Hann er einn forsprakka liðsins Bleiku Dalahrútanna sem hyggur á stórvirki á mótinu.
Þetta kemur fram á vefsíðunni Búðardalur.is.
Þar segir að líklega sé Ásmundur Einar fyrsti þingmaðurinn sem tekur þátt í keppninni.