Líðan fólksins sem slasaðist í bílveltu á Steingrímsfjarðarheiði í fyrrakvöld er óbreytt. Annað þeirra, karlmaður, er ennþá sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild Landspítalans og er með lífshættulega áverka eftir slysið, en hitt, sem er kona, er á batavegi.
Hún er þó enn á gjörgæsludeildinni.
Um er að ræða erlenda ferðamenn, karl og konu, sem voru farþegar í bílnum er hann valt út af veginum austast í Norðdal þegar komið er niður af heiðinni. Ökumaður bílsins, íslenskur karlmaður, var látinn er að var komið.