Óhætt er að segja að veðurhorfur nú fyrir verslunarmannahelgina eru með besta móti fyrir landið eins og það leggur sig. Eins eru reiknaðar langtímaspár sérlega stöðugar þessa dagana og spágetan meiri fram í tímann en alla jafna, skrifar Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur á bloggsíðu sína.
Reiknað er með háum loftþrýstingi sem á rætur að rekja til hæðarhryggs í háloftunum hér vestur undan. „Staðan er farin að verða okkur kunnugleg þetta sumarið og afleiðingin alveg þurrt veður og niðurstreymi lofts sem aftur leiðir til heiðríkju yfir landi. Það sem meira er að loftið yfir landinu verður í hlýrra lagi, en ekkert meira en það,“ skrifar Einar.
Helgarspáin er þessi að mati Einars:
Föstudagur 3. ágúst:
Nokkuð eindreginn SV- og V-vindur. Allt að því strekkingur á Vestfjörðum og vestantil á Norðurlandi, en annars hægur vindur. Leiðir til þess að hlýja loftið hærra uppi nær að blandast niður, einkum suðaustan- og austanlands. Þar gæti hiti sums staðar komist í 20 til 25°C. Annars 14 til 18 stig. Þurrt um land allt og léttskýjað, en skýjað um tíma norðvestantil.
Laugardagur 4. ágúst:
Verður komið hægviðri um land allt. Létt hafgola við strendur yfir daginn. Léttskýjað eða heiðríkja um nánast allt land. Hiti 15 til 20 stig og jafnvel hærri þegar best lætur á vænum stöðum til landsins og ekki síður á hálendinu en í byggð. Kólnar nokkuð í húminu yfir nóttina niður í 5 til 9 stig.
Sunnudagur 5. ágúst:
Svipað veður og hægviðrasamt, en þó eru nokkrar líkur til þess að það verði meira skýjað, einkum af háskýjum á landinu sem berast úr vestri og norðri suðaustur yfir landið. Ekki þó útlit fyrir úrkomu. Áfram fremur hlýtt í lofti, og allt að 16 til 19 stig og hærri þar sem sólin nær helst að brjótast í gegn, t.a.m. um austanvert landið. Hins vegar er spáð tempraðri næturhita á sunnudag.
Mánudagur 6. ágúst:
Áfram er útlit fyrir sama hægviðrið og úrkomulaust að heita má um allt land. Óvissa helst um skýjafarið, líklega skýjað vestan- og norðantil, en síður sunnan- og austantil. Ekkert lát verður hins vegar á ágætum sumarhita um land allt.