ÓB og Olís hafa ákveðið að veita 15 króna afslátt af eldsneyti í dag. Tilboðið gildir aðeins fyrir handhafa ÓB- og Olíslykla. Orkan og Shell hafa verið með sambærilegt tilboð frá því í morgun.
Lítrinn af bensíni kostar hjá ÓB án afsláttar 246,6 krónur en með 15 króna afslættinum 231,6 krónur.