Brjálað að gera í Vínbúðum

Fjölmenni í Vínbúð ÁTVR.
Fjölmenni í Vínbúð ÁTVR. Mbl.is/Árni Sæberg

Þrjá daga ársins selst mun meira af áfengi en aðra daga. Þetta eru Þorláksmessa, gamlársdagur og föstudagur fyrir verslunarmannahelgi. Íslendingar virðast ekki mjög fyrirhyggjusamir því flestir mæta rétt fyrir lokun. Í ár virðast viðskiptavinir Vínbúða þó versla fyrr í vikunni en í fyrra og hafa því kannski lært eitthvað af reynslunni.

Fólki hleypt inn í hollum

Í fyrra komu 117 þúsund manns í Vínbúðirnar vikuna fyrir verslunarmannahelgi. Reynslan sýnir að flestir viðskiptavinir koma rétt fyrir lokun, milli klukkan 16 og 18 á föstudegi. Þegar mest lætur eru allt að 7.000 viðskiptavinir afgreiddir á klukkustund og hefur stundum komið fyrir að hleypa þurfi fólki inn í hollum. 

„Það getur komið fyrir á þessum stærstu dögum, þá eru afköstin bara ekki meiri. En við reynum að hraða þessu eins og við getum og vera með allt til reiðu þannig að við getum afgreitt eins fljótt og kostur er,“ segir Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVR. Vínbúðirnar eru að hennar sögn vel búnar undir álagið í dag, vaktirnar eru vel mannaðar og búið að fylla á birgðirnar. 

Ávaxtavínið vinsælt í vikunni

Aðspurð hvort aukin sókn sé í ákveðnar tegundir áfengis á þessum tíma árs segir Sigrún Ósk að aukning sé í öllum helstu flokkum en áberandi kippur hafi komið í sölu ávaxtavíns í þessari viku og hefur salan verið 140% meiri en í fyrra. Fyrir jól og áramót er jafnan mikið selt af léttvíni, en allt árið um kring er langmest keypt af bjór. Að sögn Sigrúnar Óskar er bjórinn um 76% af heildarmagni áfengis sem selst hjá ÁTVR. 

Það sem af er þessari viku hefur 25% meira magn af áfengi selst en á sama tíma í fyrra. Mun fleiri, eða 43,5%, lögðu t.d. leið sína í Vínbúð á miðvikudaginn en á sama tíma í fyrra og 30,3% fleiri keyptu áfengi í gær en fimmtudaginn fyrir verslunarmannahelgi 2011.

Sigrún segir að veðrið gæti spilað inn í, en líklega þó fyrst og fremst sú staðreynd að útborgunardagur, 1. ágúst, lenti á frídegi verslunarmanna í fyrra en á miðvikudegi fyrir verslunarmannahelgi í ár en sem fyrr ræður útborgunardagur miklu um það hvenær fólk ræðst í stórinnkaup og á það við um áfengi eins og annað. 

Bjórinn er langvinsælastur, eða um 76% alls áfengis sem keypt …
Bjórinn er langvinsælastur, eða um 76% alls áfengis sem keypt er hjá ÁTVR. Mbl.is/Valdís Þórðardóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert