Margir mættir til Akureyrar

Fjölskylduhátíðin „Ein með öllu“.
Fjölskylduhátíðin „Ein með öllu“. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Gestir hátíðarinnar Ein með öllu streyma nú inn á Akureyri, en hátíðin hófst í gær. Að sögn lögreglunnar á Akureyri er fólk að koma sér fyrir á tjaldstæðum og hefur allt gengið fyrir sig eins og best verður á kosið.

Sömuleiðis hefur umferð inn í bæinn gengið vel og áfallalaust.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert