Eitt nauðgunarmál er til rannsóknar hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum eftir nóttina. Málið er á viðkvæmu stigi og verst lögregla allra frétta af málinu.
Þá var líkamsárás kærð í morgunsárið og er árásarmaðurinn ennþá í haldi lögreglu og verður yfirheyrður nú síðar í dag.
Yfirheyrslur yfir manni sem tekinn var vegna vörslu fíkniefna í nótt eru að hefjast þegar fréttin er skrifuð, nú laust eftir hádegið.