Enginn hefur verið handtekinn vegna tveggja nauðgana á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum á sunnudagskvöldið um verslunarmannahelgina, samkvæmt upplýsingum frá rannsóknardeild lögreglunnar á Selfossi sem fer með rannsókn málanna.
Þrjár nauðganir voru kærðar um verslunarmannahelgina á þjóðhátíð. 22 ára maður var handtekinn vegna nauðgunar sem átti sér stað á föstudagskvöldinu en honum var sleppt eftir skýrslutöku. Tvær nauðganir áttu sér stað á sunnudagskvöldið en árásarmennirnir hafa ekki fundist. Tvö fórnarlambanna eru á tvítugsaldri en eitt á þrítugsaldri.