Sérfræðinefnd skipuð um kynáttunarvanda

Geir Gunnlaugsson.
Geir Gunnlaugsson. mbl.is/Árni Sæberg

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur skipað þriggja manna sérfræðinefnd um kynáttunarvanda í samræmi við lög um réttarstöðu einstaklinga með kynáttunarvanda, sem samþykkt voru á Alþingi 6. júní síðastliðinn.

Lög um réttarstöðu einstaklinga með kynáttunarvanda kveða einkum á um úrbætur sem snúa að stjórnsýslu og málsmeðferð, tilhögun kynleiðréttinga og nafnabreytingar í þjóðskrá. Þar er sérstaklega kveðið á um hlutverk sérfræðinefndarinnar og hlutverk teymis Landspítala um kynáttunarvanda sem hefur umsjón með greiningu og viðurkenndri meðferð.

Hlutverk sérfræðinefndarinnar er að meta hvort umsóknir einstaklinga sem óska staðfestingar á því að þeir tilheyri gagnstæðu kyni uppfylli skilyrði laganna og einnig að meta hvort umsækjandi sé hæfur til aðgerðar vegna kynleiðréttingar ef þess er óskað. Nefndin annast einnig tilkynningar til Þjóðskrár Íslands vegna kynleiðréttingar.

 Í henni sitja þrír menn, tveir skipaðir af velferðarráðherra án tilnefningar; landlæknir sem er formaður nefndarinnar og annar læknir. Þriðji nefndarmaðurinn skal vera lögfræðingur, tilnefndur af ráðherra sem fer með mannréttindamál.

Geir Gunnlaugsson landlæknir er formaður sérfræðinefndarinnar en aðrir nefndarmenn eru María Rún Bjarnadóttir lögfræðingur og Engilbert Sigurðsson geðlæknir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert