Framsalið í formi handabands

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands mbl.is/Árni Sæberg

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, segir að allt frá stofnun lýðveldis hafi flutningur á forsetavaldi verið í formi handabands við brottför forseta er hann fór af landi brott. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá forseta Íslands vegna umfjöllunar fjölmiðla síðustu daga um að handhafar forsetavaldsins fylgi forsetanum í flugstöð Leifs Eiríkssonar er hann fer í opinberum erindagjörðum úr landi.

„Samkvæmt stjórnarskrá lýðveldisins fá handhafar forsetavalds – forseti Alþingis, forsætisráðherra og forseti Hæstaréttar – í hendur að öllu leyti hlutverk forseta við setningu laga og önnur hlutverk forseta í stjórnskipun landsins um leið og forseti fer úr landi.

Málið snýst því ekki um hvort forseta er fylgt á flugvöll eða ekki heldur um það hvenær og hvernig forsetavaldið færist frá forseta til handhafanna. Stjórnskipun byggist ekki aðeins á formlegum reglum heldur líka á hefðum sem löng venja hefur helgað.

Allt frá stofnun lýðveldisins hefur þessi flutningur á forsetavaldinu verið í formi handabands við brottför forseta þar eð ekki hefur fundist annað form sem tryggði jafn vel að enginn vafi væri um stað og stund slíkrar breytingar á forsetavaldinu, valdi sem t.d. getur skipt sköpum við setningu laga.

Þar til stjórnarskránni verður breytt eða þar til fram koma haldbærar tillögur um að haga þessum grundvallarþætti stjórnskipunarinnar með öruggum hætti á annan veg geta hvorki forseti né handhafar sett ábyrgðina á aðra enda geri stjórnarskrá lýðveldisins ekki ráð fyrir að embættismenn deili ábyrgð sem samkvæmt henni er forseta og handhafanna einna,“ segir í yfirlýsingu sem forsetaembættið hefur sent frá sér til fjölmiðla.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert