Alls fóru 760 bátar á strandveiðar í sumar. Ekki er ljóst hve aflaverðmæti strandveiðanna er en ef öllum afla væri landað á fiskmarkað gætu strandveiðarnar skilað um 2,6 milljörðum króna.
Þetta kemur fram í nýjasta tölublaði Fiskifrétta.
Aflahæsti báturinn er Lundey ÞH sem veiddi 35 tonn og veiðir á svæðinu við norðaustan og austanvert landið. Sjö af tíu hæstu strandveiðibátum eru reyndar frá þessu svæði en þar hafa bátarnir komist í flesta róðra.