Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu verður með sérstakt eftirlit með unglingadrykkju á Menningarnótt.
Fram kemur á Facebook-síðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðisins að göngueftirlit lögreglunnar muni skipta sér sérstaklega af áfengisdrykkju ungmenna undir lögaldri.
„Við biðjum foreldra um að muna eftir útivistartímum og gæta að ungmennunum. Skemmtum okkur vel á Menningarnótt,“ segir ennfremur á síðunni.