Vegna skólabyrjunar í þessari viku má búast við stóraukinni umferð í bítið á morgnana og síðdegis. Lögregla hvetur ökumenn til að gera ráð fyrir þessu í tímaáætlunum sínum.
Lögregla mun á sama tíma auka sýnilegt eftirlit á stofnæðum höfuðborgarsvæðisins sérstaklega en einnig í íbúðahverfum í nágrenni við grunnskóla.