Labradorhundur sem hljóp út úr bíl sem valt á Holtavörðuheiðinni í gær er enn ófundinn. Hans hefur verið ákaft leitað síðan í gærkvöldi.
Hundurinn er svartur, með ljósbrúnar hosur og ljósbrúnn á maga. Hann er merktur með símanúmeri eiganda síns og heitir Brútus.
Vegfarendur og aðrir sem leið eiga um Holtavörðuheiðina eru beðnir um að hafa augun hjá sér og hafa samband við lögregluna í Borgarnesi í síma 433-7612 ef þeir koma auga á hundinn.
Frétt mbl.is: Jeppi valt og hundur týndist