Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra mun leggja fram breytingar á ráðherraskipan á laugardag. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins og einnig að mikil leynd sé yfir breytingunum.
Í fréttinni kom fram að Jóhanna vildi ekki ræða málið við fréttastofu, henni bæri skylda til að ræða breytingarnar fyrst á flokksstjórnarfundi og svo á þingflokksfundi.