Breytingar á Stjórnarráðinu staðfestar

Ríkisráðsfundur á Bessastöðum í dag
Ríkisráðsfundur á Bessastöðum í dag mbl.is/Ómar Óskarsson

Tillögur forsætisráðherra um breytt skipulag Stjórnarráðs Íslands voru staðfestar á fundi ríkisráðs í dag. Breytingarnar taka gildi 1. september nk.

Breytingarnar fela í sér að í stað iðnaðarráðuneytis, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis, umhverfisráðuneytis, efnahags- og viðskiptaráðuneytis og fjármálaráðuneytis komi atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti og umhverfis- og auðlindaráðuneyti. Með breytingum hefur ráðuneytum fækkað úr tólf í átta í tíð núverandi ríkisstjórnar.

Samhliða breytingum á skipan ráðuneyta voru staðfestar breytingar á skiptingu stjórnarmálefna á milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands. Helstu breytingar snúa að því að verkefni sem áður voru í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu verður skipt upp milli fjármála- og efnahagsráðuneytis og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis. Þá verða verkefni sem tengjast rannsóknum og ráðgjöf varðandi auðlindir færð til umhverfis- og auðlindaráðuneytis, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá forsætisráðuneytinu.

Stjórnarráðshúsið við Lækjargötu.
Stjórnarráðshúsið við Lækjargötu. mbl.is/Hjörtur
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert