Hlaupið kom úr vestari katlinum

Gamla brúin yfir Eldvatn.
Gamla brúin yfir Eldvatn. mbl.is/Jónas Erlendsson

Myndir sem teknar voru í dag staðfesta að Skaftárhlaup hefur komið úr vestari katlinum. Veðurstofan telur að hlaupið hafi náð hámarki.

Vísbendingar um hlaupið hafa verið greinilegar síðan 25. ágúst. Hlaupið er lítið og vatnið hefur verið nokkra daga að ferðast undir Vatnajökli, sem er lengri tími en vant er. Vatnsrennsli Skaftár við Sveinstind er nú (kl. 16) um 180 rúmmetrar á sekúndu, og mun flóðið væntanlega ekki verða mikið stærra en það. Síðast hljóp úr vestari katlinum í júlí 2011.

Veðurstofan hefur fengið tilkynningar um brennisteinslykt við Hverfisfljót, sem rennur úr Síðujökli. Myndbandsupptaka úr flugvél sem flaug yfir sporð Síðujökuls í dag benda einnig til þess að eitthvað af hlaupvatninu hafi farið í Hverfisfljót. M.a. sáust nokkrir litlir
ísjakar á floti í ánni nálægt jökuljaðri og brennisteinslykt var sterkust við útfallið. Kunnugt er um einn stað undir vestanverðum Vatnajökli, þar sem hlaupvatn á ferð um jökulbotninn getur flæmst af vatnasviði Skaftár yfir á vatnasvið Hverfisfljóts og er þekkt eitt sambærilegt dæmi um þetta, við stórt hlaup úr Eystri Skaftárkatli árið 1995.

Veðurstofan starfrækir vatnamælistöð við Hverfisfljót en ekki er unnt að sækja gögn úr henni um síma. Mældar vatnshæðarbreytingar í Hverfisfljóti verða skoðaðar ítarlega þegar gögnin hafa verið sótt.

Starfsmenn Veðurstofu fylgjast náið með þróuninni.

Myndbandið hér fyrir neðan tók Jón Grétar Sigurðsson flugmaður Atlantsflugs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert