Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegsráðherra ræðir makríldeiluna og framhald veiða á fundi í London næstkomandi mánudag, 3. september.
Um ráðherrafund strandríkjanna er að ræða og auk Steingríms mæta til fundarins María Damanaki, sjávarútvegsstjóri Evrópusambandsins, Lisbeth Berg-Hansen, sjávarútvegsráðherra Noregs, og Jacob Vestergaard, sjávarútvegsráðherra Færeyja.
Í Morgunblaðinu í dag kemur fram, að með ráðherra í för verða Sigurgeir Þorgeirsson ráðuneytisstjóri, Huginn Freyr Þorsteinsson, aðstoðarmaður ráðherra, og Benedikt Jónsson, sendiherra í London. Í samtali við Morgunblaðið í gær ítrekaði Sigurgeir fyrri ummæli þess efnis að niðurstöður rannsókna á göngum makríls í sumar hefðu styrkt samningsstöðu Íslands.