Fjármálaráðherra, Oddný Harðardóttir, hefur í samráði við aðila ferðaþjónustunnar stofnað starfshóp um skattlagningu ferðaþjónustugreina og málefni sem henni tengjast.
Ákveðið var að stofna hópinn í framhaldi af gagnlegum fundum sem fjármálaráðuneytið hefur haldið, m.a. með hagsmunaaðilum í ferðaþjónustu, segir á vef ráðuneytisins.
Í starfshópinn hafa eftirfarandi verið tilnefndir: Gunnar Tryggvason, formaður, Guðrún Þórdís Guðmundsdóttir, tilnefnd af fjármálaráðherra, Jón Guðmundsson frá ríkisskattstjóra, Erna Hauksdóttir og Kristófer Oliversson frá Samtökum ferðaþjónustunnar, Helga Haraldsdóttir frá iðnaðarráðuneyti og Gunnlaugur Geirsson frá innanríkisráðuneyti.
Starfshópurinn á að skila fjármálaráðherra niðurstöðum sínum og tillögum fyrir lok september.
Hópnum er sérstaklega ætlað að fjalla um eftirfarandi:
Auk þess hefur ráðuneytið óskað eftir að Hagfræðistofnun Háskóla Íslands vinni skýrslu um áhrif væntanlegra breytinga á virðisaukaskatti á gistiþjónustu á ríkissjóð og á ferðaþjónustu. Verður skýrslan kynnt í næstu viku.