Fimm í sjálfheldu í Jökulsá í Lóni

Jökulsá í Lóni.
Jökulsá í Lóni. mbl.is/Sigurður Bogi

Fimm var bjargað um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar í Jökulsá í Lóni í gærkvöldi en fólkið var í sjálfheldu á eyri úti í ánni. Einn maður féll í ána og fannst hann látinn um miðnættið. Fókið var í hópi um 20 manna og í hestaferð.

Landhelgisgæslunni barst kl. 20:08 í gærkvöldi beiðni um aðstoð þyrlu eftir að maður féll í Jökulsá í Lóni. Takmarkaðar upplýsingar fengust frá staðnum aðrar en að fólk í hestaferð var að fara yfir ána og féll þá einn úr hópnum af baki og hvarf sjónum samferðamanna. Fimm voru í sjálfheldu á eyri úti í ánni. Maðurinn fannst um miðnætti í nótt og var þá látinn.

Í flugskýrslu segir að TF-LIF hafi farið í loftið kl. 20:38 og var mikil ókyrrð á flugleiðinni, við Stokksnes var vindur um 50 hnútar, lágskýjað og vindbelgur inn jökulsáraurana. Samband náðist við björgunarsveitarbíl þegar innar var komið og fengust frá þeim þær upplýsingar að maðurinn hefði fundist látinn og mjög miklu máli skipti að ná fimm manns sem voru í sjálfheldu á eyrinni ofar í ánni. Einnig þyrfti að sækja þrjá menn sem voru komnir í Múlaskála rétt neðan við eyrina, segir í frétt frá Landhelgisgæslunni.

Reyndi þyrluáhöfnin alloft að komast að mönnunum en vegna erfiðra aðstæðna þurfti þyrlan alltaf frá að hverfa þar til lokatilraun bar árangur. Náðist að lenda og sækja fimm menn sem þar voru. Voru þeir fluttir upp á Illakamb þar sem þeir fóru í bíl Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Var síðan flogið að Múlaskála og náðist að taka þrjá menn sem þar voru og selflytja þá upp á Illakamb.

Var að lokum hinn látni sóttur og flogið á Hornafjörð þar sem lent var kl. 00:04. Björgunaraðgerðin reyndi mjög á hæfni þyrluáhafnar og fór björgun þeirra sem voru í sjálfheldu giftusamlega þar sem aðstæður voru mjög erfiðar á staðnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert