Svæfði Illuga við munnhörpuleik

Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður VG.
Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður VG. mbl.is

„Ég kynntist Illuga Gunnarssyni fyrst sem barni á Siglufirði eftir að ég hrökklaðist þangað til náms á sínum tíma. Ég passaði hann stundum fyrir foreldra hans sem tóku mig að nokkru leyti undir sinn verndarvæng á þessum árum og reyndust mér vel.“

Þetta segir Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, á heimasíðu sinni í dag um Illuga Gunnarsson, nýjan þingflokksformann Sjálfstæðisflokksins.

Björn bætir því við að hann hafi stundum átt það til að svæfa Illuga við munnhörpuleik „og tel mig þannig hafa vakið upp tónlistarhæfileika sem blunduðu þá í brjósti hans en vöknuðu síðar til lífsins. Ég hef stundum velt því fyrir mér hvort mér hefði ekki verið nær að leggja minni áherslu á munnhörpuleikinn en ræða þess í stað meira við hann um lífið og tilveruna“.

Þá segir Björn Illuga góðan dreng og að hann sé ennfremur eini þingmaðurinn með uppáskrift frá lögmanni um að honum sé stætt á að vera á þingi. „Ég er ekki viss um að það séu allir í færum til að verða sér úti um þannig ávísun á eigið pólitískt heilbrigði. Það stafar því sannarlega miklum þingsóma af Illuga.“

Hann segir ennfremur að Illugi verði vafalaust fyrirmyndar þingflokksformaður en kannski „með örlítið annan stíl en forveri hans, en það er líka allt í lagi“ og vísar þar til Ragnheiðar Elínar Árnadóttur, forvera Illuga.

Heimasíða Björns Vals Gíslasonar

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka