Svanhildur Hólm Valsdóttir er nýr aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, en tekin var ákvörðun um það á fundi þingflokks Sjálfstæðisflokksins sem fram fór í Valhöll í dag.
Fram kemur í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum að Svanhildur hafi frá haustinu 2009 gegnt starfi framkvæmdastjóra þingflokks sjálfstæðismanna. Hún er lögfræðingur að mennt og hefur einnig mikla reynslu af störfum við fjölmiðla.