Þingmenn mótmæla uppsögn fréttaritara

Magnús Hlynur Hreiðarsson
Magnús Hlynur Hreiðarsson mbl.is

Allir tíu þingmenn Suðurkjördæmis sendu í dag sameiginlegt bréf til Páls Magnússonar útvarpsstjóra og Óðins Jónssonar, fréttastjóra RÚV, þar sem þeir lýsa óánægju með að leggja af starf fréttaritara RÚV á Suðurlandi. Þetta kemur fram á vef Sunnlenska.

Magnús Hlynur Hreiðarsson á Selfossi hefur sinnt starfi fréttaritara RÚV undanfarin fimmtán ár en verktakasamningi við hann var sagt upp nú um mánaðamótin.

Þingmennirnir segja ákvörðunina órökstudda og erfitt sé að sjá hagræðingu í því að segja upp samningum við mann í verktöku og aka eða sigla í staðinn með töku- og fréttamann þegar á þarf að halda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert