Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur sem kunnugt er um nýtt sér samskiptasíðuna Facebook um töluverða hríð til þess að miðla upplýsingum og vera í betra sambandi við almenning og fyrir skömmu tók hún einnig myndbandavefinn YouTube í sína þjónustu.
Nú hefur lögreglan stigið enn eitt skrefið í þessum efnum með opnun sérstaks ljósmyndavefjar á síðunni Flickr.com þar sem settar hafa verið inn ljósmyndir af störfum lögreglunnar sem og gamlar myndir af lögreglunni á árum áður.
Síðuna má skoða hér.