Þingmannahópur sem unnið hefur að því að leysa úr ágreiningi varðandi breytingar á stjórn fiskveiða í sumar er að ljúka störfum og herma heimildir blaðsins að komin sé niðurstaða í megindráttum, þótt ekki ríki full sátt í hópnum.
Í umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag kemur fram, að unnið sé nú að greinargerð hópsins sem kynnt verður ráðherra í vikulok og svo fulltrúum í atvinnuveganefnd Alþingis áður en málið verður gert opinbert.