Skarphéðinn Berg Steinarsson, forstjóri Iceland Express, segir að nú í haust verði farið að innheimta gjald fyrir allan farangur viðskiptavina félagsins.
„Við viljum að viðskiptavinir okkar fái það sem þeir greiða fyrir. Flest þeirra flugfélaga sem við erum í samkeppni við innheimta gjald fyrir farangur og það mun því auðvelda verðsamanburð á milli okkar og þeirra að hafa sambærilega samsett verð,“ segir Skarphéðinn Berg í viðtali á vefnum Túristi.is.
„Farþegi sem flýgur með engan farangur eða bara handfarangur á ekki að þurfa að borga fyrir farangur annarra farþega. Viðskiptavinir okkar eiga að fá það sem þeir borga fyrir, hvort sem það er sæti eða farangur. Við munum að sama skapi ganga ákveðnar eftir því að farið sé eftir þeim reglum sem gilda og heimila tíu kíló í handfarangur,“ segir Skarphéðinn í viðtali.
Lesa má viðtalið í heild hér.