Söfnunarþættinum Á allra vörum sem fram fór á Rás 2 og RÚV lauk í gærkvöldi. Hafa nú safnast tæplega 100 milljónir króna í átakinu, sem staðið hefur yfir síðan í septemberbyrjun, bæði með frjálsum framlögum og með sölu á Á allra vörum glossum frá Dior.
Söfnunarféð á að nýta til að koma á fót stuðningsmiðstöð fyrir langveik börn með ólæknandi sjúkdóma. „Við erum í skýjunum með árangurinn. Þetta þýðir að við höfum tryggt stuðningsmiðstöðinni fjögur rekstrarár og það er umfram þær væntingar sem við gerðum í upphafi,“ segir Gróa Ásgeirsdóttir einn forsvarsmanna átaksins.
Fram kemur í fréttatilkynningu að aðstandendur átaksins vilji koma á framfæri þökkum til allra þeirra sem tóku þátt í átakinu og undirbúningi þess undanfarna mánuði.
„Við hefðum ekki verið á allra vörum án stuðnings bakhjarlanna okkar, Landsbankans, Vistor og Medor, og hvað þá án auglýsingastofunnar Fíton og True North sem framleiddu auglýsingaherferðina okkar. Það er með ólíkindum hvað hægt er að gera þegar allir leggjast á eitt, en yfir 200 manns lögðu hönd á plóginn og gerðu þessa hugmynda að veruleika,“ segir Elísabet Sveinsdóttir sem einnig stóð að átakinu.
Fram kemur að enn séu til sölu gloss auk þess sem söfnunarnúmerin 903 1000, 903 3000 og 903 5000 verði opin í viku til viðbótar. „Við erum óendanlega þakklátar fyrir stuðning þjóðarinnar allrar, heildverslunar Halldórs Jónssonar ehf. og allra söluaðilanna sem selt hafa glossin án þess að taka nokkuð fyrir. Það eru ekki til nóg stór orð til að lýsa þakklæti okkar,“ segir Guðný Pálsdóttir.