Þyrla Landhelgisgæslunnar er nú komin að Mófellshnausum við Emstrur í Rangárvallasýslu, en þar slasaðist maður á fjórhjóli um sexleytið í kvöld.
Þyrlan mun leggja af stað innan tíðar og flytja manninn á slysadeild Landspítalans í Fossvogi. Tildrög slyssins liggja ekki fyrir né hversu mikið maðurinn slasaðist.
Frétt mbl.is: Fjórhjólaslys við Mófellshnausa