Formenn funda um norðurskautsmál

Árni Þór Sigurðsson.
Árni Þór Sigurðsson. Ómar Óskarsson

Fundur formanna utanríkismálanefnda þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna hófst í Reykjavík í gær og stendur í dag. Gestgjafi fundarins er Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, en samráðsfundir sem þessir eru haldnir til skiptis í ríkjunum átta.

Á vefsíðu Alþingis segir að meginumræðuefni fundarins séu norðurskautsmál, ástandið í Mið-Austurlöndum, samvinna við grannsvæði í austri og ástandið í Hvíta-Rússlandi.

Auk þess verður farið yfir forgangsmál og áherslur í starfi einstakra utanríkismálanefnda. Þá verður Hellisheiðarvirkjun heimsótt og efnt til sérstakrar málstofu um virkjun jarðvarma.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert