Sjúkraliðar krefjast fundar með öllum starfsmönnum Landspítalans, velferðarráðherra og forstjóra spítalans sem fyrst. „Með ákvörðun sinni um ríkulega hækkun launa forstjórans, sem voru ærin fyrir, hefur velferðarráðherra lagt í rúst þá samstöðu sem ríkt hefur meðal starfsmanna, sem hafa með blóði, svita og tárum náð að spara í rekstri stofnunarinnar,“ segir í ályktun sem samþykkt var á fjölmennum fundi sjúkraliða á LSH í dag.
Sjúkraliðar hafa ásamt öllu starfsfólki á LSH tekið þátt í gríðarlega erfiðum niðurskurði á rekstri Landspítalans á síðastliðnum fjórum árum, segir í ályktuninni. „Starfsfólk spítalans hefur tekið á sig auknar byrðar, launaskerðingu og gífurlegt viðbótarálag. Allt hefur þetta verið gert undir dyggri forystu forstjóra spítalans sem hvatt hefur starfmenn til dáða og lofað framgang þeirra í ræðu og riti,“ segir í ályktuninni.
Þá segir:
„Með ákvörðun sinni um ríkulega hækkun launa forstjórans, sem voru ærin fyrir, hefur velferðarráðherra lagt í rúst þá samstöðu sem ríkt hefur meðal starfsmanna, sem hafa með blóði, svita og tárum náð að spara í rekstri stofnunarinnar.
Fundurinn krefst þess að launahækkun þess manns sem leitt hefur niðurskurðinn innan Landspítalans verði dregin til baka eða viðlíka hækkanir nái til starfsmanna sem tekið hafa þátt í því erfiða verkefni að vera heilbrigðisstarfsmaður á Íslandi á síðastliðnum árum. Ef ekki þá afsalir þú þér, herra forstjóri, þessari launahækkun til að koma í veg fyrir að öll sú vinna sem starfsmenn LSH hafa lagt á sig á síðastliðnum árum verði gerð hlægileg,“ segir í ályktuninni.