Atvinnuleysi mælist 5,8%

Víða voru framkvæmdir í sumar en tölum Vinnumálastofnunar og Hagstofu …
Víða voru framkvæmdir í sumar en tölum Vinnumálastofnunar og Hagstofu Íslands um atvinnuleysi í ágúst ber ekki saman mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Atvinnuleysi ágúst 2012 mældist 5,8%, samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands. Í ágúst í fyrra var atvinnuleysið 6,2%. Er þetta mun meira atvinnuleysi heldur en tölur Vinnumálastofnunar benda til en samkvæmt þeim mældist atvinnuleysið 4,8% í ágúst.

Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru í ágúst 2012 að jafnaði 178.300 manns á vinnumarkaði. Af þeim voru 168.000 starfandi og 10.300 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 79,4%, hlutfall starfandi 74,8% og atvinnuleysi var 5,8%. Atvinnuleysi var 0,4 prósentustigum lægra en í ágúst 2011 en þá var atvinnuleysi 6,2%. Atvinnuleysi ágúst 2012 var 5% á meðal karla miðað við 5,7% í ágúst 2011 og meðal kvenna var það 6,7% miðað við 6,8% í ágúst 2011.

Atvinnulausir teljast þeir sem voru án atvinnu í viðmiðunarviku könnunarinnar, þ.e. höfðu hvorki atvinnu né voru í vinnu (í eina klukkustund eða lengur) sem launþegi eða sjálfstætt starfandi, eru að leita að vinnu og geta hafið störf innan tveggja vikna eða hafa fengið starf sem hefst innan 3 mánaða. Einstaklingar sem eru ekki í vinnu en eru í námi flokkast atvinnulausir ef þeir uppfylla skilyrðin hér að ofan.

Árstíðaleiðréttur fjöldi atvinnulausra í ágúst 2012 var 11.300 eða 6,3% en var 10.500 eða 5,8% í júlí 2012. Fjöldi starfandi var 166.700 í ágúst 2012 eða 75% en var 170.100 eða 76,3% í júlí 2012. Leitni árstíðaleiðréttingar á atvinnuleysi sýnir að árið 2011 lækkaði atvinnuleysi tiltölulega jafnt eða um eitt prósentustig yfir árið, en nú árið 2012 hefur það nánast staðið í stað, segir í frétt Hagstofu Íslands.

Tölur Vinnumálastofnunar

 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert