Þeir þrír þingmenn sem í dag eiga sæti á Alþingi fyrir Samfylkinguna í Norðausturkjördæmi hafa allir hug á því að sitja áfram á þingi eftir þingkosningarnar sem fyrirhugaðar eru næsta vor. Þingmennirnir sem um ræðir eru Kristján L. Möller, Sigmundur Ernir Rúnarsson og Jónína Rós Guðmundsdóttir.
Þetta kemur fram á fréttavef Vikudags á Akureyri í dag. Aðalfundur kjördæmisráðs Samfylkingarinnar í kjördæminu verður haldinn á Húsavík á næstkomandi laugardag og má búast við því að þar verði tekin ákvörðun um það með hvaða hætti verði staðið að vali á framboðslista flokksins.