Á síðustu dögum hafa mælst nokkrir jarðskjálftar af stærðinni 4 og yfir úti fyrir Norðurlandi. Þessir jarðskjálftar hafa fundist víða á Norðurlandi allt frá Sauðárkróki, Siglufirði, Ólafsfirði, Dalvík, Akureyri, á Húsavík og nágrenni. Samkvæmt Veðurstofunni hafa alls á fimmta hundrað jarðskjálftar verið staðsettir síðan jarðskjálftahrinan hófst. Jarðskjálftar eru nokkuð algengir á þessu svæði og árin 1996 og 2004 voru svipaðar jarðskjálftahrinur í gangi. Erfitt er að segja fyrir hve lengi þessi skjálftahrina muni standa yfir né er hægt að útiloka fleiri skjálfta af stærðinni 4 eða yfir þá stærð.
Í tilkynningu frá Almannavörnum kemur fram að mikilvægt sé að íbúar á þekktum jarðskjálftasvæðum geri ráðstafanir til að draga úr tjóni vegna jarðskjálfta. Á vefsíðu almannavarnadeildarinnar má nálgast upplýsingar um ýmsar varnir til að draga úr tjóni og minnka hættu í jarðskjálftum Einnig má nálgast upplýsingar um viðbrögð í jarðskjálftum og ýmsar hagnýtar leiðbeiningar.
Með því að skoða hvar á heimili eða vinnustað hættur leynast og valdið gætu tjóni í jarðskjálfta má gera ráðstafanir sem draga verulega úr tjóni. Hægt er að nálgast upplýsingar um varnir fyrir jarðskjálfta hér og viðbrögð hér.