Stór hluti tækjabúnaðar Landspítalans er orðinn úreltur. Um 60% tækjakaupa síðustu ár voru fyrir gjafafé. Einn milljarð króna myndi kosta að kaupa mikilvægustu tæki og unnt væri að láta verða af því með breyttri forgangsröðun ríkisstjórnarinnar. Þetta kom fram í umræðum um Landspítalann á Alþingi nú síðdegis.
Milljarður fyrir mikilvægustu tækin
Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, sagði með ólíkindum að ekki væri gert ráð fyrir auknum tækjakaupum á Landspítala í fjárfestingaráætlun ríkisstjórnarinnar síðan í vor. Í fyrirspurnartíma á Alþingi nú síðdegis spurði hann hvort Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra væri sáttur við forgangsröðun ríkisstjórnarinnar, eða hvort hann hafi talað máli Landspítalans og orðið undir með sín sjónarmið.
Jón vísaði til bráðalista sem tekinn hefur verið saman um þau tæki sem þyrfti að kaupa strax til að forðast að öryggi við sjúklinga verði ógnað. Sá listi hljóði upp á milljarð króna í fjárfestingu. Taldi hann upp verkefni á lista ríkisstjórnarinnar sem hann sagði að mættu víkja og nefndi hann fjárfestingar í verkefnum s.s. vistvænum innkaupum, náttúruminjasafni, húsi íslenskra fræða, húsafriðunarsjóði.
Samtals ríflega 400 milljónir króna „sem ríkisstjórnin ætlar að setja í gæluverkefni á næsta ári,“ sagði Jón. Hann bætti því við að hann vildi ekki gera lítið úr þessum verkefnum, en forgangsröðunin væri arfavitlaus.
Framlögin lækkuðu í góðærinu
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra benti í svari sínu á að það sem hafi bjargað tækjakosti Landspítalans síðustu ár sé gjafafé, þar sem 50-60% af tækjakaupum síðustu ár hafi verið gjafir. „Margt af tækjabúnaðinum er orðið tæpt og úrelt og varahluti vantar í sumum tilfellum. Þess vegna þurfum við að snúa ofan af þessu," sagði Guðbjartur.
Hann sagði þó forvitnilegt að skoða hvernig framlög til tækjakaupa hafi þróast og sagðist hugsi yfir hve tölurnar voru lágar í góðærinu. „Ég fagna því mjög að Sjálfstæðisflokkurinn skuli hér tala fyrir auknum útgjöldum inn í heilbrigðiskerfið, hafandi talað fyrir meiri niðurskurði undanfarið," sagði Guðbjartur.
Undir þetta tóku Björn Valur Gíslason, þingmaður VG og formaður fjárlaganefndar, og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingar, sem bentu bæði á að í góðærinu, á árunum frá 2002 til 2007, hafi framlög ríkisins til tækjakaupa Landspítalans verið skorin niður um helming. Vandinn sé því uppsafnaður frá fyrri tíð. „Það var pólitísk stefna þeirra stjórnvalda sem þá voru að setja ekki pening til tækjakaupa, það voru til peningar þá, en viljinn var ekki fyrir hendi," sagði Björn Valur.