Drukkinn á dráttarvél

mbl.is/Þorkell Þorkelsson

Lögreglan á Suðurnesjum hafði í gærkvöldi afskipti af karlmanni á fimmtugsaldri sem ók dráttarvél, ölvaður og sviptur ökuréttindum, eftir Garðvegi.

Maðurinn var að flytja heyrúllur og athygli vakti að bæði dráttarvélin og vagninn voru ljóslaus að aftan og enginn glitmerki á vagninum.

Lögreglan stöðvaði akstur mannsins og fannst þá rammur áfengisþefur af honum. Hann var því handtekinn og færður á lögreglustöð.

Festivagninn sem heyrúllurnar voru á reyndist við athugun vera  óskráður og einnig vantaði skráningarmerki og baksýnisspegla á dráttarvélina. Í henni fannst hálfs lítra flaska af áfengisblöndu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert