„Stefnumótun taki á málaflokknum með reisn“

Líknardeildinni á Landakoti var lokað árið 2011. Hollvinasamtök líknardeilda telja …
Líknardeildinni á Landakoti var lokað árið 2011. Hollvinasamtök líknardeilda telja að lokun deildarinnar hafi verið mistök. Formaður samtakanna segir nú færri rúm fyrir sjúklinga í líknandi meðferð en áður. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Reynsla okkar af lokun líknardeildarinnar [í Landakoti] vakti okkur til umhugsunar um hvar ákvarðanir séu teknar. Eru þær teknar í samræmi við stefnu stjórnvalda? Eru teknar geðþóttaákvarðanir af stjórnendum? Sem jafnvel ganga í berhögg við vilja þeirra sem leggja línurnar, hvort sem er Alþingi eða aðrir,“ segir sr. Örn Bárður Jónsson, formaður Hollvinasamtaka líknardeilda, en samtökin stóðu í gær fyrir ráðstefnu um stefnumörkun í heilbrigðismálum á Íslandi á Grand hóteli þar sem fjölmargir aðilar héldu erindi um heilbrigðismálefni.

Telur ekkert hafa sparast með lokun deildarinnar

„Hvað með vilja fólksins? Hvað með rödd almennings í þessu öllu? Auðvitað veit ég að við búum í heimi takmarkaðra gæða og ekki til endalausir peningar en ég er ekki viss um að það hafi sparast ein einasta króna við lokun líknardeildarinnar á Landakoti en það er búið að skerða þjónustuna og aldraðir, deyjandi, hafa ekki þessi sömu úrræði og veitt voru þar. Það finnst mér miður,“ segir sr. Örn Bárður.

En hvað með opnun nýrrar líknardeildar í Kópavogi?

„Það er auðvitað mjög gott og ég fagna henni, en heildarþjónustan hefur minnkað. Rúmin eru færri. Þessi stækkun var opnuð fyrir um hálfum mánuði en ég veit ekki hvort það er búið að manna deildina ennþá. Hugsanlega eru þessi rúm ennþá tóm þó hún hafi verið opnuð formlega fyrir hálfum mánuði.“

„Líknardeild á Landakoti þjónaði mörgum“

„Ég var þarna á líknardeild í síðustu viku en það var ekki búið að breyta neinu þar og þeir hafa verið í vandræðum með að manna, fá lækna og hjúkrunarfólk til starfa á þessar deildir,“ segir sr. Örn Bárður og bætir við: „Þetta var mjög flott deild á Landakoti og vann vel. Þjónaði mörgum og var mjög þörf deild og það var skaði að henni skyldi lokað.“

Á ráðstefnunni í gær var samþykkt ályktun þar sem skorað var á yfirmenn heilbrigðismála á Íslandi að mótuð yrði heildræn stefna í líknarþjónustu á Íslandi sem taki mið af nútímalegum skilningi á líknarhugtakinu og mæti þörfum allra þegna landsins án tillits til aldurs.

Ályktun Hollvinasamtaka líknardeilda í heild:

„Hálft ár er liðið frá því líknardeild fyrir aldraða á Landakoti var lokað. Þar með var aðgengi eldra fólks í viðkvæmri stöðu við lífslok takmarkað að sérhæfðri þjónustu.  Ákvörðun þessi var í andstöðu við stefnumótun í forgangsröðun í heilbrigðisþjónustu frá 1997, sem Alþingi samþykkti. Þar var líknarþjónusta sett í forgangsflokk tvö af fjórum. 

Með lokun líknardeildarinnar var sérhæfðum hópi heilbrigðisstafsmanna þar með sundrað. Þrátt fyrir ábendingar og mikinn samfélagslegan vilja til þess að þyrma þessari mikilvægu starsemi, völdu stjórnendur velferðarráðuneytis og Landspítala að taka ekki tillit til þessa. Málatilbúnaður og framkvæmd öll var andstæð við upplýsta og opna umræðu í íslensku samfélagi. 

Ráðstefna Hollvinasamtaka líknardeilda, haldin í Reykjavík 24. september 2012,  skorar á æðstu stjórnendur heilbrigðismála á  Íslandi að mótuð verði heildstæð stefna í líknarþjónustu á Íslandi sem tekur mið af nútímalegum skilningi á líknarhugtakinu og mæti þörfum allra þegna landsins án tillits til aldurs.

Virða þarf óskir fólks til þess að búa sem lengst á eigin heimili, en að fólk geti reitt sig á sérhæfða líknarmeðferð án tafa ef allt um þrýtur heima.  Stefnumótun í heilbrigðisþjónustu til ársins 2020 verður að taka á þessum málaflokki af reisn.“

Sr. Örn Bárður Jónsson, formaður Hollvinasamtaka líknardeilda.
Sr. Örn Bárður Jónsson, formaður Hollvinasamtaka líknardeilda.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert