Nauðsynlegt er að áfram verði haldið samningaviðræðum við Evrópusambandið um fulla aðild Íslands að sambandinu. Þjóðin á skilið að fyrir liggi fullbúinn samningur sem hún getur greitt atkvæði um. Á umbrotatímum er nauðsynlegt að ekki sé lokað leiðum sem geta styrkt stöðu Íslands í framtíðinni. Þetta kemur fram í ályktun aðalfundar Já Íslands sem haldinn var í gær.
Í ályktuninni segir að jafnframt sé nauðsynlegt að fyrir þingkosningar verði settar í forgang þær breytingar á stjórnarskrá Íslands sem heimila frekara samstarf Íslands við bandalagsþjóðir sínar innan Evrópusambandsins.
Ný stjórn samtakanna kosin á aðalfundinum fyrir árið 2012-2013:
Jón Steindór Valdimarsson formaður
Arndís Kristjánsdóttir, meðstjórnandi
Valdimar Birgisson, meðstjórnandi
Ásdís J. Rafnar, varamaður
Daði Rafnsson, varamaður
Fulltrúar félaganna sem þau velja sjálf:
Sjálfstæðir Evrópumenn - Benedikt Jóhannesson
Evrópusamtökin - Andrés Pétursson
Evrópuvakt Samfylkingarinnar - Anna Margrét Guðjónsdóttir
Ungir Evrópusinnar - Dagbjört Hákonardóttir