Flug á Bakka þegar Herjólfur siglir í Þorlákshöfn

Frá Vestmannaeyjum.
Frá Vestmannaeyjum. mbl.is/GSH

Flugfélagið Air-Arctic sem einnig kallast Eyjaflug hefur tekið til starfa og býður m.a. upp á flug frá Bakka til Vestmannaeyja. „Við erum tveir sem keyptum flugvélarnar TF-VEV, TF-VEY og TF-VEL,“ segja eigendurnir, Bergur Axelsson flugmaður og Einar Aðalsteinsson flugvirki, í samtali við Eyjafréttir.

Flugfélagið ætlar að vera með vél sína í flugi milli Bakka og Vestmannaeyja alla þá daga sem Herjólfur siglir ekki á Landeyjahöfn. „Á þriðjudaginn sigldi Herjólfur ekki og þá vorum við með loftbrú milli Bakka og Vestmannaeyja,“ segja þeir félagar við Eyjafréttir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert