Þorgerður Katrín hættir

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mbl.is

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, alþingismaður og fyrrverandi ráðherra, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi fyrir næstu þingkosningar.

Þorgerður Katrín hefur setið á þingi frá árinu 1999. Hún var mennta- og menningamálaráðherra 2004-2009 og varaformaður Sjálfstæðisflokksins í 5 ár.

„Ég hef notið þess að taka virkan þátt í stjórnmálum um langt árabil þar sem ég hef fengið tækifæri til að berjast fyrir frelsi og fjölbreytni í samfélaginu. Ég er stolt af þeim árangri sem náðist undir minni forystu á sviði mennta- og menningarmála og ekki síður því að hafa gegnt mikilvægu hlutverki í forystu Sjálfstæðisflokksins, fjölmennustu stjórnmálahreyfingar landsins. 

Um leið og ég tek ákvörðun um að gefa ekki kost á mér, hvet ég gott fólk með sjálfstæðishugsjónina að leiðarljósi til að leggja sig fram um að byggja upp metnaðarfullt og framsækið samfélag. Sérstaklega hvet ég konur til að taka virkan þátt og nýta sér það einstaka tækifæri sem nú er í íslenskum stjórnmálum.  Mér er efst í huga þakklæti til þeirrar breiðfylkingar sjálfstæðismanna sem ég hef starfað með og hitt fyrir á þeim árum sem ég hef verið í stjórnmálum,“ segir í tilkynningu frá Þorgerði Katrínu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert