Ekkert samráð við forsætisnefnd

Ragnheiður Ríkharðsdóttir, situr í forsætisnefnd Alþingis og í fjárlaganefnd.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir, situr í forsætisnefnd Alþingis og í fjárlaganefnd. mbl.is/Eyþór Árnason

Ragnheiður Ríkharðsdóttir, varaforseti Alþingis, segist ekki vita til þess að neitt samráð hafi verið haft við forsætisnefnd Alþingis áður en meirihluti fjárlaganefndar tók ákvörðun um að afþakka yfirferð Ríkisendurskoðunar yfir fjáraukalög.

Ríkisendurskoðun heyrir undir forsætisnefnd Alþingis. Nefndin hefur ekki rætt ákvörðun fjárlaganefndar og óvíst er hvort hún gerir það fyrr en eftir viku, því næsta vika er svokölluð kjördæmavika og þá eru ekki þingfundir á Alþingi.

„Mér er ekki kunnugt um að meirihluti fjárlaganefndar hafi borið þessa ákvörðun undir nefndina eða forseta Alþingis,“ sagði Ragnheiður.

Álheiður Ingadóttir, sem einnig situr í forsætisnefnd, sagði í samtali við RÚV í dag að það væri fráleitt að forsætisnefnd tæki fram fyrir hendurnar á meirihluta fjárlaganefndar í þessu máli. Hún segir að hvorki forsætisnefnd né forseta Alþingis sé heimilt að grípa með þeim hætti fram fyrir hendur nefnda þingsins.

„Ég er ekki sammála henni því Ríkisendurskoðun heyrir undir forsætisnefndina og þetta er það ferli sem fjárlög og fjáraukalög hafa farið í. Ef það er einhver breyting á þeirri hefð sem má tengja við 43. gr. stjórnarskrárinnar þá þykir mér sérkennilegt ef það er ekki forsætisnefndar að fara yfir það,“ sagði Ragnheiður.

Ragnheiður sagði að það væri verið að koma forsætisnefnd Alþingis í erfiða stöðu með því að setja samskiptin við Ríkisendurskoðun í þennan farveg. „Í mínum huga hlýtur forsætisnefnd að þurfa að skoða það ef formaður fjárlaganefndar lýsir því yfir að það sé trúnaðarbrestur milli Ríkisendurskoðunar og þingsins og fjárlaganefndar. Mér finnst reyndar að hann þurfi að útskýra í hverju sá trúnaðarbrestur felst. Þó að þetta mál hafi komið upp sem varðar Fjársýsluna, og ég get tekið undir að það sé ámælisvert hversu langan tíma hefur tekið að vinna þessa skýrslu, finnst mér persónulega fáránlegt að ræða um trúnaðarbrest milli Ríkisendurskoðunar og þingsins vegna þess.

Ég minni á að það er Alþingi sjálft sem afgreiðir fjárlögin ár hvert og það hefur því tekið ákvörðun um að láta þessa fjármuni renna í upplýsingakerfi Fjársýslunnar. Alþingi sjálft ber því ábyrgð á því að hafa veitt fjármuni í þetta. Svo er hægt að takast á um hvort innra eftirlit er í lagi í þessum stofnunum,“ sagði Ragnheiður.

Ragnheiður sagði það vera mikil mistök að tengja þessa umdeildu skýrslu við vinnu við fjáraukalög. Hún sagði ekki ganga ef þingnefndir ynnu þannig að ekki væri hægt að vinna í einu máli vegna ágreinings í öðru. „Að mínu mati er þetta kolröng nálgun.“

Ekki náðist í Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, forseta Alþingis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert