3,2 stiga skjálfti við Grímsey

Frá Grímsey.
Frá Grímsey. mbl.is/Þorvaldur Örn Kristmundsson

Klukkan 3:03 í nótt varð jarðskjálfti að stærð 3,2 með upptök um 20 km austan við Grímsey. Annar skjálfti 2,6 að stærð varð á sömu slóðum kl. 06:04. 

Fáeinir aðrir skjálftar hafa mælst, allir minni en 2 að stærð.

Engar tilkynningar hafa borist um að skjálftarnir hafi fundist. Jarðskjálftar eru mjög algengir á þessum slóðum, segir í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert