Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á haglabyssur, riffla með hljóðdeyfum, lyfseðilsskyld lyf og peninga í húsleit síðastliðinn föstudag, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni.
Málavextir voru þeir að lögreglan fékk upplýsingar um að karlmaður á fimmtugsaldri væri að selja lyfseðilsskyld lyf. Við húsleit fundust tvær haglabyssur, tveir rifflar og hljóðdeyfar á þá. Einnig fannst töluvert magn af lyfjum, að mestu leyti í sölupakkningum. Við nánari athugun kom í ljós að um var að ræða tæplega 600 töflur af ritalíni og rúmlega 100 töflur af mogadon.
Á vettvangi fundust einnig nokkrar milljónir í peningum og seðlatalningarvél sem gefur ákveðnar vísbendingar um umfang sölunnar. Við yfirheyrslu játaði maðurinn að hafa selt lyfseðilsskyld lyf til langs tíma.